Áskrift og þjónusta
Með því að kaupa áskrift að fjarnámskeiðum Betra náms fellst kaupandi/áskrifandi eftirfarandi skilmála.
Þjónusta
- Strax við kaup á áskrift fær kaupandi sent notendaheiti og aðgangsorð í tölvupósti.
- Einstaklingsáskrift er einungis ætluð til einkanota.
- Foreldrum nægir að kaupa eina áskrift fyrir börn sín.
- Óheimilt er að gefa öðrum upp aðgangsorðin.
- Ef af einhverjum ástæðum má ætla að aðgangsorðin hafi komist í hendur annarra en þeirra sem rétt eiga á að nota þau, þá er þess óskað að haft sé samband við Betra nám tafarlaust og verða þá ný aðgangsorð send, ella áskilur Betra nám sér rétt til að loka aðgangi tafarlaust.
Uppsögn / Lokun
- Kaupandi ber ábyrgð á því að segja upp áskrift, sem endurnýjast á 30 daga fresti þar til sagt upp.
- Kaupandi segir upp áskrift sjálfur með því að skrá sig inn á vefinn og velja uppsögn á "mín síða" (eða með því að senda tölvupóst á kolbeinn@betranam.is)
Endurgreiðsluábyrgð
Kaupanda býðst að fá námskeiðið endurgreitt sé þess óskað skriflega (í tölvupósti) innan 30 daga frá kaupum (nema sértækir skilmálar komi fram á sölusíðu viðkomandi námskeiðs). Engar undantekningar eru á þessari reglu.
UPPSÖGN ÁSKRIFTAR
Námskeiðið er áskriftarnámskeið. Í því felst að mánaðargjald er skuldfært af greiðslukorti kaupanda á 30 daga fresti (nema annað sé tekið fram) þar til hann óskar sjálfur eftir að ljúka áskrift.
Til að loka áskrift er smellt á "mín síða" úr valmynd, þar neðarlega á síðunni er áskriftaryfirlit.